Heimur Bollunnar
Gamalt blogg
19.02.2007 10:48:03 / bollubollan

Bolla bolla rjómabolla!

Jæja hefði átt að fagna aðeins meira við síðustu vigtun! Vogin í dag segir 100 grömm í plús!!!!!:evil: Hvað er málið?? Skal reyndar fúslega viðurkenna það að ég stals í 2 rjómabollur um helgina en kommon:!:

En ég ætla þó ekki að gefast upp né láta þetta bögga mig of mikið sko! Ekki sjens!  Er of ákveðin í þessu til að gera það8)

En já bolludagur í dag og ég tók út minn skammt um helgina svo það verður bara grænmeti á diskinn minn þennan daginn. Ætla þó að hafa dúndurgóðu fiskibollurnar sem við familýan gerðum um daginn í kvöldmat, Enda rataði ekkert óhollt í þær:lol: Það er kosturinn við að útbúa hlutina sjálfur, þá veit maður pottþétt hvað fer ofan í mann.

Veit ekki hvort það verður mikil hreyfing á þessum bæ í dag enda við stubba báðar hálf slappar, hún rauk upp í hita í gær aftur greyjið.

En já takk fyrir peppið stelpur, ótrúlegt hvað það gefur manni mikið í þessari baráttu:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 15:34:50 / bollubollan

Fimmtudagur til frama?

Kominn fimmtudagur og helgin nálgast óðfluga!

Búinn að vera rólegur dagur, yngri daman lasin svo við erum búnar að vera hér heima að kúrast:D  Ekki slæmt!

Eldaði mér kjúklingabringu í hádeginu og sauð grænmeti með, smá léttfeti og voða góð máltíð!  Gerðum okkur svo búst með vanilluskyri, vatnsmelónu, banana og epli slurp:haha:  Litlu hnátunni fannst það allavega ekki slæmt og þambaði alveg hreint þessi lasna elska;)  Þamba svo vatn í gríð og erg enda búin að flytja lögheimilið á dolluna! Alltaf pissandi usss:S

Ég hreyfði mig ekki í gær og þar sem ég er að mana mig uppí að ryksuga og þurrka af öllu er spurning hvort að það dugi fyrir daginn í dag... svitna nú ágætlega við það sko:$  Er samt að spá í að skella dillirassa myndbandinu í tækið í kveld fyrir Despó svo ég fái nú ekki nagandi samviskubit þegar komið er uppí rúm...

Jæja ryksugan "bíður", rykið allavega fer allavega ekki af sjálfsdáðum:!:

Endilega kommenta ef það er einhver sem les þessa þvælu:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 14:43:31 / bollubollan

Fyrstu tölur komnar í hús!

Jæja, steig á vigtina í gær (hef ákveðið að vigta mig á mánudögum) og viti menn það eru farin 3,3 kg á þessari fyrstu viku!!!!:o

Þurfti að stíga nokkrum sinnum á vigtina til að sannfærast... Hef samt ekki verið nógu dugleg síðan um helgina.  En er að taka mig á! Fékk rosa sykurþörf í gærkveldi og fékk mér sæt vínber og smá léttpopp. 

Hef ekki drattast í að hreyfa mig síðan á laugardag en er að spá í að skella Ágústu Johnson í tækið og stíga nokkur spor núna á meðan litla daman sefur... Fínt að svitna yfir því þegar svona kalt er í veðri.;)

Hilsen!

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 14:22:28 / bollubollan

Ég get það, ég get það ekki.(11.02.07)

Jámm nei stóðst ekki poppið í bíó, fékk mér lítinn poka og Coke Light:cry:
Oooog í dag bragðaref! Er ég að gefast strax upp???? Var svo uppfull af jákvæðini og ákveðni fyrstu dagana og er eiginlega bara alveg sama í dag.  Drattaðist nú samt út í rösklegann göngutúr í gær.

Æ ætla að standa mig betur á morgun vil ekki gefast upp og halda bara áfram að finta og fitna...
Well ætla að hætta þessu þunglyndistali og reyna að skella einum ávexti í mig:D

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 14:18:23 / bollubollan

Smá svindl. (10.02.07)

En ætla nú svo sem ekki að vera að velta mér uppúr því... fékk mér tvær rjómabollur í gær:^) Samviskubitið búið að naga mig en verð bara að gera betur í dag!
Fæ mér yfirleitt Spercial K í morgunmat, ekki tvær skálar eins og vanarlega bara lítið í eina.  Svo er það grænmeti í hádegis og kvöldmat og nóg af því.  Og ávextir of kors.  Er alveg hissa hve "róleg" ég er á kvöldin. Var alltaf verst þá, þurfti alltaf að vera að nasla eitthvað og helst súkkulaði.  En hef bara alveg geta látið sæta ávexti eins og vatnsmelónu og vínber duga.  Hrikalega sátt við það8)
Reyni líka að vera dugleg í vatninu, leiðist reyndar þessar endalausu WC ferðir en það fylgir víst...

Stefnan hjá okkur skötuhjúum er sett á BÍÓ í kveld, þar SKAL ég standast bíópoppið góða:lol:

Yngri daman farin að rusla út öllum hreina þvottinum svo ég set punktinn hér..

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 14:14:04 / bollubollan

Nú er það hafið... (08.02.07)

...stríðið við fitupúkann sjálfann!!!:klikk:
Ekki það að ég hafi ekki reynt fyrr... en í þetta skipti skal það hafast! Ég ætla að skella þessu bloggin inn aðallega fyrir mig sjálfa, ef ég skrifa á blað á ég pottþétt eftir að týna því svo ég ætla að prufa þetta.  ´

Mun ég hér aðallega fjalla um hvernig ég reyni að takast á við fitupúkann ljóta.
Síðastliðinn mánudag (5.feb.07) byrjaði átakið mikla og ég fór út í göngutúr í fyrsta skipti í nokkur ár!!!:^)
Á mánudaginn mældist ég 137.6 kg!!!8|Alldrei í lífinu skal ég vega það mikið aftur, þetta er viðbjóðslegt og ekki bjóðandi nokkrum manni! Eða konu :P Núna er fimmtudagur og ég er búin að hreyfa mig alla daga síðan á mánudag og huga vel að mataræðinu mínu.  Er með matseðil danska kúrsins til hliðsjónar.
Ég ætla mér í þessari fyrstu atrennu að kioma mér niður í næsta tug og að lokum niður fyrir 3 stafa töluna stóru:!:

Jæja nóg komið í dag, er svöng en ætla samt í rúmið án þess að láta neitt eftir mér, fékk mér vatnsmelónu fyrr í kvöld og það skal duga!

Later...

» 0 hafa sagt sína skoðun


Ni�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1807 dögum
RSS tengill